Námskraftur
Markmiðið með Námskrafti er að styrkja nemendur með stuðningi og eftirfylgni til aukinnar ábyrgðar á námi sínu, með það að leiðarljósi að þau geti nýtt sér nám í framhaldsskólum og standist þær kröfur sem slíkt nám gerir til þeirra.
Hvað er Námskraftur?
Námskraftur er samvinnuverkefni Námsflokka Reykjavíkur, Mennta- og Menningarmálaráðuneytisins og Fjölbrautarskólans við Ármúla. Um er að ræða einnar annar námsúrræði á framhaldsskólastigi.
Fyrir hverja er Námskraftur?
Fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára.
Hvenær eru tímar?
Tímar hefjast alltaf 8:30 og nemendur eru alltaf búnir á sama tíma eftir hádegi.
Samfleytt stundaskrá frá morgni fram yfir hádegi.
Hvernig er námið samsett?
Námið samanstendur af:
ÍSLENSKU 103,
LISTUM 103,
HEIMSPEKI 103,
STÆRÐFRÆÐI (áfangi miðaður við stöðu nemanda)
Einnig hefur verið í boði fyrir nemendur að taka:
Fjarnám í ENSKU frá Fjölbraut við Ármúla með stuðningi í Námsflokkum Reykjavíkur.
Atriði sem gott er að hafa í huga:
- Þeir sem eru duglegir og taka áfanga í öllum fögum geta því verið að klára allt að 12 einingum á önninni.
- Stuttir tímar í náms- og starfsfræðslu eru einnig á stundaskrá og fá nemendur stuðning til að stunda námið.
- Vel er fylgst með mætingum nemenda og hringt heim til þeirra sem mæta ekki á réttum tíma.
- Boðið er upp á einkaviðtöl við náms- og starfsráðgjafa, um það bil fjögur viðtöl eða eins og þurfa þykir.
- Nemendur eru aðstoðaðir við að sækja um framhaldsskóla áður en náminu lýkur og er umsóknum þeirra fylgt eftir.
Fyrirspurnir og ábendingar
Nánari upplýsingar veita Jódís Káradóttir, náms- og starfsráðgjafi og umsjónarmaður verkefnisins This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og Iðunn Antonsdóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Upplýsingar í síma 411 6540 og farsíma 664 8606.
Hægt er að sækja um Námskraft í gegnum Menntagátt á http://menntagatt.is/